27mars

Dökkhærð segiði..

  • Ég er orðin dökkhærð....
  • Get ekki beðið eftir páskafríinu!
  • Ég er búin að vera geggjað dugleg í ræktinni og er planið að vera það áfram.
  • Ég fæ 2 páskaegg! Prinsessan Ullandi
  • Get sko ekki beðið eftir að fara að vinna um páskana.
  • Launin mín voru hækkuð!!Hlæjandi

Þá er þetta orðið gott.. Smá myndir með breytingunni...

..



..



Comment..?
Brosandi
27. mars 2007 klukkan 09:42

8 athugasemdir
12mars

Ég skrapp til Reykjavíkur um helgina.. Ég lét verða að því að keyra! og ljónið hennar Hörpu er ennþá heilt þessi elska Svalur En jáá.. held að ég hafi bara keyrt um reykjavíkina eins og herforingi og það var bara einusinni flautað á migSkömmustulegurUllandi


Sunna kom til Reykjavíku og váá það var svo ægilega gaman að hitta hana! Anný og Anna Fanney voru líka með okkur.. Við fórum líka að versla í hádeginu á laugardeginum.
Það var byrjað í kringlunni og farið nokkrar ferðir fram og til baka, og fengið sér að borða á McDonalds.. mmm..!Brosandi
Síðan hringdum við í Hörpu systur og ÉG keyrði í smáralindina með okkur!Glottandi Við versluðum í svona 2 klst í viðbót og fengum okkur svo að borða á Pizza Hut.
Þegar að allir voru búnir að borða yfir sig af Pizzu og ostafylltum brauðstöngum þá var setið aðeins lengur og melt áður en að við færum í bíó.

Við fórum á NORBIT í bíó og var skemmtileg mynd fyrir utan það að það var svona pínu komið nóg af Eddie Murphy!

Fór líka að versla aðeins með Hörpu á Sunnudeginum.. fórum í kringluna að leita að skóm.. hún fann, en keypti reyndar ekki... en ég fann ekki og hefði heypt!

Við fórum svo á Pizza Hut á Esjunni og fengum okkur gott að borðaGlottandi Hehe líka þegar að við komum inn þá voru 2 strákar þarna að borða og einn bara gat ekki haft augun af okkur, svo mikið starði hann og við tókum báðar eftir því heh

eftir að hafa borðað og setið heil lengi að melta fórum við og rúntuðum aðeins á laugarveginum og settum Sálardisk frá 1992 í græjurnar og bara græjurnar í botn! Það var sko sungið og dansað inni í littla ljóninu!! Hlæjandi Stoppuðum á ljósum á Laugaveginum og mér varð litið inn í næsta bíl þar sem að 2 strákar sátu og horfðu bara á okkur syngja og dansa og svo bara sprungum við öll úr hlátri haha, bæði við systurnar og gæjarnir í næsta bíl! Þetta varð nú bara til þess að við sungum hærra og dönsuðum meira!!HlæjandiSvalur

Má segja að ég hafi skemmt mér vel þarna hehe.. ekkert leiðinlegt að fá smá athygli heldur.. ekki finnst okkur systrum það allavegaGlottandi

12. mars 2007 klukkan 08:58

5 athugasemdir
06mars

Újee.. Suður um næstu helgi Hlæjandi

Sunna að koma og hlakkar mjög til að sjá hana!! Svo er notta búið að plata mig til að koma að versla þannig að þar sem að ég á engan pening þá verð ég aalgjörlega í mínus eftir þessa helgi... en mér er svosem saman Óákveðinn ég er að fara að versla!! HlæjandiGráðugur

EN jáá... ætti ég að prufa að keyra í reykjavík!!? Held nefnilega að það yrði bara aðeins og skrautlegt Skömmustulegur Má nottla ekki skemma ljónið hennar Hörpu hehe

Segjum þetta gott í bili... er að deyja úr þreytu, bara því að ég sef ekkert útaf draugunumHissa Hef þurft að sofa með kveikt á lampanum seinustu 2 nætur og til öryggis þá held ég að ég geri það í kvöld líka..! Skömmustulegur og MUNI að loka fataskápnumUllandi

06. mars 2007 klukkan 22:12

2 athugasemdir
05mars

Ókei þar sem að síðan mín vill ekki taka við myndum lengur þá gerði ég aðra síðu sem að ég set myndir inná nema að ég ætla ekki að setja Myndirnar frá helginni þaðan. Náði líka í forrit sem að ég get minnkað myndirnar þannig að þetta ætti að verða minna vesen :D

Vona að það virki en ef að ég verð einhverntíman með myndavélina þá getiði kíkt á Nýju síðuna . ;)
05. mars 2007 klukkan 22:54

Engin athugasemd
26febrúar

Er í náttúrufræði hjá Einari og var að fá út úr verkefni... ekki upp á mtt besta sko hehe... enda náttúrufræði.

En já ég fékk þær gleðifréttir að ég má falla í náttúrufræði og samt komast á félagsfræðibraut ;)

En ný vika byrjuð og helgin var góð :)


Skemmti mér mjöög vel á laugardaginn og svona, hitti helling af fólki og svo skemmtum við Inga Þórey, Bóbó og Villi okkur vel á kaffi Ak.
Hitti líka fleiri í partýi hjá Helga Hrafni og komst að því að hann kannaðist við mig frá því fyrir 8 árum eða eitthvað hah..!

En jáá.. velheppnað kvöld. Segjum það bara ! Hlæjandi
26. febrúar 2007 klukkan 13:16

2 athugasemdir
24febrúar

í gær þá var lítið gert. Bóbó kom í bæinn og við skelltum okkur í bíó á Braking and Entering. Án efa ein leiðinlegasta mynd sem að ég hef farið á í bíó sko!!
En já það er nú loksins komin helgi, ein gott því að ég hefði ekki meikað meiri skóla í þessai viku. Svo framlengdi ég kortið mitt í ræktina á þriðjudaginn og er núna búin að  fara 3X sinnum, og ég held að það sé bara að standa sig soldið vel Glottandi

Laugardagur strax og helgin hálfnuð...
Hvað skal gera í dag eða kvöld? veit ekki neitt sko...

Megið láta mig vita eða heyra í mér!  Brosandi
24. febrúar 2007 klukkan 12:27

2 athugasemdir
21febrúar

Öskudagur?

öskudagurinn í dag og nokkrir mættu í búningum í skólann.... Svo vorum við sjö stelpur sem að fórum í hádegishlénu svona uppá gannið niðrí bæ.

jabb


mm

Svona litum við útGlottandi
21. febrúar 2007 klukkan 17:57

Engin athugasemd
18febrúar


yesÁ laugardaginn fórum við mæðgurnar í brúðkaup. Við tókum okkur til hjérna heima og svo kíkjum við á Glerártorgog ég verð nú að segja að við fengum alveg ágæta athygli þarna, í kjólunum og hælaskónum!
Brúðkaupið átti að byrja kl 2 og þegar að við vorum búnar að kaupa okkur skó, við systur allavega, þá var klukkan 5 mínútur í 2 þannig að við brunuðum af stað í Glerárkirkju og löbbum inn. Ég fer eitthvað að spá bara af hverju eru svona fáir þarna ? og svo föttum við allar að við bara þekkjum ekki neinn!!Hissa
Við reynum að læðast út og mætum konu í hurðinni.. Harpa spyr voða kurteis alveg bara : Hvaða brúðkaup er þetta? Og konan alveg.. Nei nei þetta er skírn!!
Við, voða vandræðalegar alvge ó Guuuð, við erum á leiðinni í brúðkaup, strunsum út og springum úr hlátri!!!
SkömmustulegurHlæjandi
Jáhm, við fórum víst í VITLAUSA kirkju!!

Við orðnar alltof seinar og ég held að mamma hafi aldrei keyrt jafn hratt! Bíllinn rakst alltaf niður í eitthvað í öllum beyjum og liggur við prjónaði af stað!! Og svo lentum við á einu rauðu ljósi og mamma orðin svo æst
Hlæjandi að hún byrjar að kalla(samt inni í bílnum sko) til hinna bílanna þegar að kom grænt ljós alveg bara; Hott hott!! Eins og það væru hestar fyrir framan okkur... Við harpa nottla að pissa á okkur úr hlátri!Hlæjandi
Við mætum í Brúðkaupið, seinar, sem að nottla á EKKI að gera en við greyjin gátum nottla ekkert gert í þessu
Skömmustulegur
En okei.. maður hefði nú haldið að óhöpp og svona væri búin þann daginn en NEI! Við læðumst inní kirkjuna, í hláturskasti, og reynum að fara hljóðlega og setjumst aftast við allt fólkið, og það tóku sko allir eftir okkur!! En svo erum við eitthvað þarna að hlæja lágt ennþá þegar að Harpa alveg bara ; En bíddu.. erum við ekki viltausu megin!?
Hissa OG jújú auðvitað sátum við hjá skyldmönnum og vinum brúðarinnar!!! og við vorum skyldar brúðgumanum!
Þessu hélt ég að ég myndi aldrei lenda í! En þá er það allavega búið og vonand gerist það ekki aftur þó að þetta sé nú fyndið eftir á hehe
Ullandi
Við allavega fórum í rétta veislu og höguðum okkur vel þar þannig að..
Glottandi
við voða sætarvoða skvísur Glottandi

mm


18. febrúar 2007 klukkan 19:18

1 athugasemd
14febrúar

Valentínusardagurinn <3

Já Valentínusardagurinn genginn í garð og Hildur ennþá ein..
Engin gjöf... engin rós.. ekkert dekur.. &Oacute;&aacute;kve&eth;inn
Enn ég spjara mig! Er að spá í bara að  elda ofan í mig og Hörpu í kvöld.. mömmu örugglega líka Glottandi Svona rómó kvöldverður hjá mæðunum þar sem að pabbi verður örugglega að vinna og við systur einar.

Vonandi skemmta sér öll pör vel í dag og kannski einhverjir sem koma á óvart! Hl&aelig;jandi


<----<3  Gleðilegan Valentínusardag!! <-----<33

..
14. febrúar 2007 klukkan 10:24

1 athugasemd
12febrúar

Um helgina fórum við Linda í bústaðinn og í fyrsta skipta þá sé ég sko vel eftir að hafa ekki tekið með myndavélina þegar við fórum á fjórhjólin!
Lindu tókst að drepa tré á nýja hjólinu en fljúga á því gamla niður gil! Komm on Linda það var ekki SVONA hált! Hl&aelig;jandi
Allavega, þá eru hjólin í lagi og Linda líka og þá er nottla allt í góðu... þó að greyjið tréð hafi ekki lifað þetta af.

Ég keyrði út í búsatð og til baka og allir eru á lífi ennþá.. þó svo að það hafi oft verið minnt mig á að keyra á löglegum hraða&Oacute;&aacute;kve&eth;inn

...

- Hilduur HelgaSvalur
12. febrúar 2007 klukkan 14:16

1 athugasemd

Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Leit